24.10.1950
Efri deild: 9. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 38 í B-deild Alþingistíðinda. (227)

7. mál, skólastjóralaun og kennara við barnaskóla

Frsm. minni hl. (Gísli Jónsson):

Herra forseti. Ég vil fyrst og fremst þakka hv. form. n. fyrir að gefa þinginu tækifæri til að ræða málið á ný. Eins og hv. frsm. meiri hl. sagði, varð ekki samkomulag, og hef ég ekki hugsað mér að gera brtt. og mun heldur ekki nota þennan tíma til að tefja málið. Ég er óánægður með frv. og mun því greiða atkv. á móti því.