02.02.1951
Efri deild: 61. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 1183 í B-deild Alþingistíðinda. (2459)

173. mál, gengisskráning o.fl.

Dómsmrh. (Bjarni Benediktsson):

Herra forseti. Ég vil upplýsa það, að vísitalan í janúar hefur hækkað um eitt stig, en ekki fimm stig, eins og haldið hefur verið fram hér. Hv. þm. hefur ruglað þessu saman við vísitölu desember, sem var 127 stig, en ekki greidd 4–5 stig. Ég held, að þetta sé alveg misskilin afstaða hjá honum.