13.02.1951
Efri deild: 68. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 1374 í B-deild Alþingistíðinda. (2843)
76. mál, áfengislög
Páll Zóphóníasson:
Ég tel, að frv. eins og það er orðið muni koma að mjög litlu gagni fyrir lögregluna, — enda að því stefnt af þeim mönnum, sem í vínið vilja halda, — en í von um, að hv. Nd., sem frv. fer til, lagi það aftur, segi ég já.