23.10.1950
Neðri deild: 7. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 185 í C-deild Alþingistíðinda. (3278)

34. mál, launauppbót

Viðskmrh. (Björn Ólafsson) :

Herra forseti. Bráðabirgðalög þau, sem hér er um að ræða, voru sett 19. júlí í sumar til þess að ákveða uppbót á laun frá 1. júlí til 31. des. 1950 miðað við vísitöluna 112 stig. Síðan hafa lögin verið numin úr gildi og eru því aðeins lögð fyrir deildina að formi til. Ég leyfi mér að leggja til, að frv. verði vísað til 2. umr. og hv. fjhn.