21.01.1952
Neðri deild: 65. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 774 í B-deild Alþingistíðinda. (1063)

21. mál, ríkisborgararéttur

Frsm. (Jörundur Brynjólfsson):

Þetta mál hefur nú tekið nokkrum breyt. í hv. Ed. Að vísu mun allshn. Nd. þekkja til sumra breytinganna, en þó treysti ég mér ekki til þess að fullyrða neitt um 2–3 nöfn, sem hv. Ed. hefur tekið upp í frv., hvernig ástatt er með þau. Get ég því fyrir mitt leyti fallizt á ósk hv. 2. þm. Reykv. um, að nefndin taki frv. aftur til athugunar. Vonandi ætti það ekki að þurfa að tefja málið, þótt það sé gert.