26.11.1951
Neðri deild: 33. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 778 í B-deild Alþingistíðinda. (1087)

38. mál, hámark húsaleigu o. fl.

Jörundur Brynjólfsson:

Herra forseti. Það er aðeins smávægileg breyt., sem ég hef flutt við þetta frv. Það er um gildistöku l. Því var ekki veitt athygli fyrr en eftir 2. umr., að heppilegra væri að breyta ákvæðum 5. gr. í þá átt, að l. skyldu öðlast gildi þegar.