06.11.1951
Neðri deild: 23. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 927 í B-deild Alþingistíðinda. (1437)

83. mál, Iðnaðarbanki Íslands hf

Frsm. meiri hl. (Gunnar Thoroddsen):

Herra forseti. Þegar mál þetta var hér í d. til 1. umr., var samþykkt að vísa því til iðnn. Nefndin hélt fund samdægurs, en varð ekki sammála. Meiri hl. leggur til, að frv. verði samþ. með beim breyt.. er ég boðaði við 1. umr. málsins. Minni hl. telur ekki tímabært fyrir Alþ. samþ. slíkt frv., en vill leggja það fyrir hina stjórnkjörnu n., sem vinnur að rannsókn á bankalöggjöfinni.

Ég hef svo ekki meira um þetta að segja að sinni, en vil fyrir hönd meiri hl. mælast til, að það verði samþ. í þessari deild.