18.12.1951
Efri deild: 47. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 1007 í B-deild Alþingistíðinda. (1562)

145. mál, vegalög

Vilhjálmur Hjálmarsson:

Herra forseti. Ég hef beitt mér fyrir í nefndinni, að þessi vegur væri tekinn upp í vegalögin nú, en ég lít svo á, a',i vegalögunum verði ekki breytt, svo að vit verði í, nema með einhvers konar samkomulagi, líkt og hér hefur verið gert. Ég vil ekki rjúfa það og hlýt því að segja nei.