27.11.1951
Efri deild: 35. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 1042 í B-deild Alþingistíðinda. (1724)

121. mál, ráðstöfun erfðafjárskatts og erfðafjár ríkisjóðs til vinnuheimila

Rannveig Þorsteinsdóttir:

Herra forseti. Heilbr.- og félmn. leyfir sér að bera fram skrifl. brtt. við 1. gr. frv., þess efnis, að í staðinn fyrir

„1952“ komi: 1953 — í samræmi við það, sem orðað var við 1. umr. málsins. N. ber þessa till. fram af því, að hún telur, að með þessari breyt. sé frekar tryggður öruggur framgangur málsins. Leyfi ég mér svo að afhenda hæstv. forseta tillöguna.