22.01.1952
Efri deild: 68. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 1374 í B-deild Alþingistíðinda. (2301)

109. mál, skipun prestakalla

Fram. (Þorsteinn Þorsteinsson):

Ég geri ráð fyrir því, að menntmn. muni telja sér skylt að athuga þetta mál, eins og hæstv. kirkjumrh. fór fram á, enda hafa svoleiðis samtöl verið áður um það, og n. reyni að koma saman til að athuga málið. En við þurfum til þess dálítinn tíma, og munum við þá reyna að nota tímann nú milli kl. 4 og 5 til athugunar.