17.01.1952
Neðri deild: 60. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 260 í C-deild Alþingistíðinda. (2718)

92. mál, raforkulög

Gunnar Thoroddsen:

Herra forseti. Þessu frv. var vísað til iðnn. Nd., og á fundi 15. nóv. var það rætt og samþ. að leita umsagnar raforkumálastjóra um það. Sú umsögn hefur ekki borizt enn, þrátt fyrir það að ég hef gengið eftir henni a. m. k. einu sinni eða tvísvar. En n. hafði samþ. að afgreiða málið ekki fyrr en að fenginni þeirri umsögn.