26.10.1951
Sameinað þing: 8. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 83 í D-deild Alþingistíðinda. (3124)

57. mál, heimilisdráttavélar, prjónavélar og bifreiðar til landbúnaðarþarfa

Flm. (Ásgeir Bjarnason):

Herra forseti. Þessi till., sem ég hef leyft mér að flytja hér á þskj. 81, er aðallega fram komin af þremur ástæðum. Í fyrsta lagi vegna þess, að það hefur verið mjög takmarkaður innflutningur á tækjum þessum undanfarin ár. Í öðru lagi vegna þess, að þau hafa verið mjög eftirsótt af bændum. Og í þriðja lagi hefur innflutningur á þessu ári verið gefinn frjáls að miklu leyti. Annars ætla ég ekki að halda hér neina ræðu um þetta, en vil vísa til grg. með frv.