29.01.1953
Sameinað þing: 34. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 76 í D-deild Alþingistíðinda. (2433)

204. mál, jafnvægi í byggð landsins

Flm. (Sigurður Bjarnason):

Herra forseti. Ég mun ekki hafa framsöguræðu fyrir þessari till. af þeirri ástæðu fyrst og fremst, að fyrir henni eru færð ýtarleg rök í grg., sem fylgir henni. Í öðru lagi er svo áliðið orðið þings, að við flm. óttumst, að till. nái ekki afgreiðslu, ef miklar umræður hefjast um hana nú. Ég vil þess vegna leyfa mér að óska þess, að þessari till. verði vísað til hv. allshn., og biðja hv. n. að afgreiða hana eins fljótt og hún frekast hefur tök á.