05.02.1953
Sameinað þing: 39. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 272 í D-deild Alþingistíðinda. (2726)

215. mál, Hótel Borg

Gísli Jónsson:

Herra forseti. Ég verð nú að undrast yfir því, að hæstv. forseti skuli taka þetta mál hér til meðferðar. Það er verið að útbýta málinu. Það fylgir engin grg. þáltill. og það er vitanlega nauðsynlegt, að þetta mál verði upplýst, svo að menn geti undirbúið sig undir bæði umr. og afgreiðslu þessa máls hér. Ég tel því alls ekki viðeigandi að taka þetta mál fyrir. (Gripið fram í.) Ég vildi óska þess, að málið yrði tekið út af dagskrá.