23.10.1952
Efri deild: 13. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 154 í B-deild Alþingistíðinda. (316)

9. mál, tollskrá o. fl.

Haraldur Guðmundsson:

Herra forseti. Meginefni þessa frv. er í 1. gr. um hækkun á tollum, eins og þar segir. Ég er andvigur þessari gr. og efni hennar, og þó að ég telji, að 2. og 3. gr. eigi fullkomlega rétt á sér, hlýt ég þó að vera á móti frv. og mun greiða atkv. gegn því við atkvgr.