21.11.1952
Neðri deild: 30. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 205 í B-deild Alþingistíðinda. (357)

10. mál, áburðarverksmiðja

Fjmrh. (Eysteinn Jónsson):

Ég hef máske ekki sagt það nógu greinilega áðan, en skal þá segja það svo greinilega eins og þarf, til þess að hv. 8. landsk. þm. ekki misskilji það, að ég mun ekki styðja slíka þáltill., og þess vegna getur hann ekki tekið þetta aftur hér í trausti þess, að ég styðji þáltill. (Gripið fram í.) Nei, ég sagði það hér áðan, að ég mundi ekki styðja þáltill., en hv. þm. hefur tækifæri til þess að fá prófaðan þingviljann með því að flytja þáltill., og það finnst mér vera sú rétta aðferð.