01.10.1952
Neðri deild: 1. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 22 í B-deild Alþingistíðinda. (3650)

Sætaskipun

Forseti (SB):

Ef þess er sérstaklega óskað, að hlutað sé um það, þá er orðið við þeirri ósk. Mér skilst, að hún liggi fyrir frá hv. þm. V-Húnv. Verður þá hlutað um það, hver skuli fyrstur draga, og kemur upp talan 20, en nú er það vandamál uppi, að ekki er búið að ganga frá prentuðum nafnakallslista í hv. þd., þannig að ég verð að biðja hv. þm. að doka aðeins við, meðan talið verður.