19.12.1952
Sameinað þing: 26. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 1614 í B-deild Alþingistíðinda. (3691)

Þinghlé

forseti (JPálm):

Það hefur nú verið ákveðið að fresta fundum Alþingis frá í dag þangað til 12. jan. n. k., og verður fundur, sem þá verður haldinn, að öðru leyti boðaður með dagskrá. Nú þegar við skiljum hér og förum nokkuð sinn í hvora áttina, þá vil ég óska hv. þm., hæstv. ríkisstjórn og öllu starfsfólki Alþingis gleðilegrar jólahátíðar, góðs og farsæls komandi nýárs. Utanbæjarmönnum, sem fara nú heim til sín, óska ég góðrar ferðar og góðrar heimkomu og vona og óska, að við megum hér allir heilir hittast, þegar Alþingi kemur saman að nýju, og að okkur auðnist að gera þá ráðstafanir til ýmissa endurbóta í okkar landi.