05.02.1953
Efri deild: 72. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 1615 í B-deild Alþingistíðinda. (3694)

Starfslok deilda

forseti (BSt):

Þetta verður að öllum líkindum síðasti fundur hv. d. á þessu þingi. Það getur að sjálfsögðu komið fyrir, að d. verði enn kölluð saman á fund. — Ég vil þá í fyrsta lagi biðja um umboð til þess að undirskrifa gerðabók fyrir þennan fund, það mun ekki vera um fleiri að ræða — skoða það samþykkt, ef enginn mælir í gegn. Í öðru lagi vil ég leyfa mér að þakka öllum hv. þdm. fyrir samveruna á þessu þingi og góða samvinnu við mig sem forseta, og vil ég þá alveg sérstaklega þakka starfsmönnum d., hv. varaforsetum fyrir það, þegar þeir hafa hlaupið í skarðið fyrir mig, og skrifurum d. fyrir alveg sérstaklega mikla skyldurækni og góð störf og aðstoð við mig.

Það standa kosningar fyrir dyrum. Það er þar af leiðandi óvíst, hverjir okkar sitja hér saman oftar, og vil ég því einnig nota tækifærið til þess að þakka öllum hv. þdm. án undantekningar fyrir góða viðkynningu fyrr og síðar.