05.02.1953
Efri deild: 72. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 1615 í B-deild Alþingistíðinda. (3695)

Starfslok deilda

Haraldur Guðmundason:

Herra forseti. Ég veit, að ég mæli fyrir hönd allra deildarmanna, þegar ég flyt forseta þakkir fyrir hans árnaðaróskir nú, jafnframt því, sem ég þakka honum fyrir ágæta og röggsama fundarstjórn hér og ágætt samstarf í heild sinni hér í d. Ég vil leyfa mér að óska honum góðrar heimferðar og heillar heimkomu og enn á ný í nafni deildarmanna þakka honum fyrir samstarfið og liðinn tíma. Ég vænti, að hv. deildarmenn taki undir orð mín með því að rísa úr sætum. — [Deildarmenn risu úr sætum.]