09.12.1952
Neðri deild: 37. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 239 í B-deild Alþingistíðinda. (423)
17. mál, þingsköp Alþingis
Jörundur Brynjólfsson:
Herra forseti. Þetta mál er nú komið frá Ed. og tók þar allmiklum breytingum, að minnsta kostí að fyrirferð, þó að efnisbreyt. séu minni. Það var seinast þar til meðferðar í gær. Allshn. Nd. hefur ekki haft neina aðstöðu til þess að athuga málið, og ég vildi fara fram á það við hæstv. forseta, að hann frestaði umr. málsins að þessu sinni, svo að n. gæfist kostur á að taka það til athugunar.