08.12.1952
Sameinað þing: 22. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 501 í B-deild Alþingistíðinda. (671)

1. mál, fjárlög 1953

Forseti (JPálm):

Þessi umr. í kvöld, sem er almenn umr., fer fram með þeim hætti, að hver þingfl. hefur til umráða 50 mínútur, en hefur heimild til að skipta þeim tíma milli fleiri ræðumanna, eftir því sem flokkunum þykir við eiga. Röð flokkanna í kvöld er þannig, að fyrst er Sameiningarfl. alþýðu — Sósfl., þá Alþfl., í þriðja lagi Framsfl. og síðast Sjálfstfl.

Nú hefst umr. og tekur til máls fyrri fulltrúi Sameiningarfl. alþýðu — Sósfl., hv. 5. landsk. þm., Ásmundur Sigurðsson.