22.03.1954
Efri deild: 65. fundur, 73. löggjafarþing.
Sjá dálk 1404 í B-deild Alþingistíðinda. (1554)

119. mál, Búnaðarbanki Íslands

Forseti (GíslJ):

Þá hafa ekki fleiri kvatt Sér hljóðs. Út af fyrirspurn hæstv. dómsmrh. til forseta um það, hvort nokkuð sé að hljómnum hér í deildinni, þá skal það verða athugað, t.d. hvort orð eins og já breytist inn á,segulband og verði að neii eða hvort önnur orð og setningar breytist að efni til á annan hátt. Það er að sjálfsögðu mikils virði fyrir hv. þm. að vita um, hvort slíkt getur átt sér stað. — Umræðum um þetta mál er lokið og verður gengið til atkv.