11.03.1954
Neðri deild: 60. fundur, 73. löggjafarþing.
Sjá dálk 1513 í B-deild Alþingistíðinda. (1867)

121. mál, skipun læknishéraða

Halldór Ásgrímsson:

Herra forseti. Ég vil þakka meiri hl. heilbr.- og félmn. fyrir afgreiðslu þessa máls. — Í tilefni af minnihlutaáliti hv. 1. landsk. (GÞG) tel ég mig hafa haft ástæðu og nokkra löngun til að ræða við hann, en þar sem hann er hér ekki staddur, sé ég ekki ástæðu til að lengja mál mitt, og aðeins jafnframt, að ég flyt meiri hl. n. þakkir, vænti ég þess, að hv. þdm. sýni nú sem fyrr skilning í þessu máli og afgreiði það eins og meiri hl. n. leggur til.