08.04.1954
Efri deild: 80. fundur, 73. löggjafarþing.
Sjá dálk 1523 í B-deild Alþingistíðinda. (1889)

121. mál, skipun læknishéraða

Frsm. meiri hl. (Vilhjálmur Hjálmarsson):

Herra forseti. Ég vildi aðeins beina þeirri fsp. til hv. 4. þm. Reykv. (HG), hvort ég hef heyrt það rétt áðan, að hann væri ekki flm. að þessum till. Hafi ég heyrt það rétt, þá skilst mér, að það standist varla, að þær séu fluttar af meiri hl. hv. nefndar.