27.03.1954
Neðri deild: 71. fundur, 73. löggjafarþing.
Sjá dálk 1565 í B-deild Alþingistíðinda. (2005)

173. mál, brunatryggingar í Reykjavík

Forseti (SB):

Ég vil af tilefni þeirrar óskar, sem fram hefur komið um að fresta málinu, segja það, að ég varð við þeirri ósk hæstv. fjmrh. í gær að fresta 3. umr. um málið þar til í dag. Þar sem ég hef heitið flutningsmönnum frv. því að ljúka 3. umr. um það í dag, treysti ég mér ekki til þess að verða við ósk hæstv. fjmrh. nú að fresta umr. um það í dag.