09.04.1954
Efri deild: 84. fundur, 73. löggjafarþing.
Sjá dálk 1625 í B-deild Alþingistíðinda. (2077)

193. mál, brunatryggingar utan Reykjavíkur

Frsm. minni hl. (Hermann Jónasson):

Herra forseti. Ég skal ekki tefja þetta mál. Það er aðeins örstutt brtt., sem þannig hljóðar:

Við 1. gr. Fyrir orðin „15. okt. 1955“ kemur: 15. okt. 1954.

Ég hef áður talað fyrir þessu og sé ekki ástæðu til þess að endurtaka það, sem gæti þá orðið til þess að vekja umræður á ný um málið og tefja það.