18.02.1954
Efri deild: 48. fundur, 73. löggjafarþing.
Sjá dálk 1719 í B-deild Alþingistíðinda. (3615)

Fjarvistir þingmanna

forseti (GíslJ):

Ég vil leyfa mér að beina því til hv. 6. landsk., að síðan Alþingi tók aftur til starfa 5. þ. m., hefur hann ekki sótt hér fundi og ekki heldur gefið neinar ástæður fyrir fjarveru eða óskað eftir fjarvistarleyfi. Ef ástæður hans eru slíkar, að hann hefur ekki ástæður til að sækja betur fundi, vildi ég mælast til þess, að hann léti varamann sinn mæta fyrir sig, sem að sjálfsögðu yrði tekið til athugunar af forseta.