19.11.1954
Sameinað þing: 18. fundur, 74. löggjafarþing.
Sjá dálk 57 í D-deild Alþingistíðinda. (2415)

105. mál, atkvæðagreiðsla að hálfu Íslands

Forseti (JörB):

Hv. 2. þm. Reykv. vildi ég mega segja það, að það mun verða reynt að sjá svo um, að afgreiðsla þessa máls fari það tímanlega fram. að vitneskja geti borizt sendimönnum Íslands til Ameríku um úrslit málsins. (Gripið fram í.) Það er til of mikils mælzt, að hv. 2. þm. Reykv. taki nú allt aftur, sem hann er búinn að segja hér í kvöld, og umræða haldi áfram aðeins vegna þess.