19.10.1954
Efri deild: 6. fundur, 74. löggjafarþing.
Sjá dálk 26 í B-deild Alþingistíðinda. (26)

11. mál, tollskrá o.fl.

Haraldur Guðmundsson:

Herra forseti. Eins og fram kom við 2. umr., þá er ég algerlega andvígur B-lið 1. gr. Hins vegar tel ég, að 2. og 3. gr. séu nauðsynlegar og sjálfsagt að samþykkja þær, en þar sem B-liður skiptir miklu máli í sambandi við afgreiðslu frv., mun ég sitja hjá við atkvgr.