10.11.1954
Sameinað þing: 13. fundur, 74. löggjafarþing.
Sjá dálk 665 í D-deild Alþingistíðinda. (3017)

209. mál, verkfræðingar í þjónustu ríkisins

Fjmrh. (Eysteinn Jónsson):

Ég vil taka fram út af þessari fsp., að verkfræðingar þeir, sem hurfu úr þjónustu ríkisins á s.l. sumri, hafa gert launakröfur, sem eru í ósamræmi við launagreiðslur til opinberra starfsmanna, og hefur því ekki verið samið enn þá. Málið er í athugun hjá ríkisstj., og meira er ekki hægt að segja á þessu stigi málsins um það.