14.04.1955
Sameinað þing: 52. fundur, 74. löggjafarþing.
Sjá dálk 2060 í B-deild Alþingistíðinda. (3280)

Varamenn taka þingsæti

Frsm. (Lárus Jóhannesson):

Kjörbréfanefnd hefur athugað kjörbréf séra Gunnars Gíslasonar, sem er varaalþingismaður fyrir Skagafjarðarsýslu fyrir D-listann, lista Sjálfstæðisflokksins. Kjörbréfanefnd hefur ekkert við kjörbréfið að athuga og leggur til, að kosningin verði tekin gild.