10.05.1955
Neðri deild: 89. fundur, 74. löggjafarþing.
Sjá dálk 2072 í B-deild Alþingistíðinda. (3328)

Starfslok deilda

forseti (SB):

Þar sem þetta verður væntanlega síðasti fundur hv. þd. að þessu sinni, leyfi ég mér að þakka öllum hv. þdm. fyrir ánægjulega samvinnu við mig sem forseta á þessu þingi.

Ég árna utanbæjarþingmönnum góðrar heimferðar og heimkomu og öllum hv. þm. gleðilegs og farsæls sumars. Vænti ég, að vér megum allir heilir hittast á Alþingi á komandi hausti.