10.05.1955
Neðri deild: 89. fundur, 74. löggjafarþing.
Sjá dálk 2073 í B-deild Alþingistíðinda. (3329)

Starfslok deilda

Einar Olgeirsson:

Ég vil leyfa mér, og ég veit, að ég mæli þar fyrir hönd allra hv. þdm., að þakka hæstv. forseta fyrir góðar óskir í okkar garð. Ég vil einnig leyfa mér að þakka honum fyrir góða samvinnu við okkur þm. og fyrir röggsama og góða fundarstjórn. Ég vil vona, að við megum sjá hann aftur heilan í haust, og ég vil óska honum gleðilegs sumars og biðja hv. þm. um að rísa úr sætum til að taka undir árnaðaróskir mínar við hæstv. forseta. — [Deildarmenn risu úr sætum.]