24.01.1956
Sameinað þing: 29. fundur, 75. löggjafarþing.
Sjá dálk 1408 í B-deild Alþingistíðinda. (2910)
Minning Jakobs Möllers
Frsm. (Gísli Guðmundsson):
Herra forseti. Kjörbréfanefnd hefur haldið fund nú í hléinu, og hefur verið lagt fyrir fundinn kjörbréf Tómasar Árnasonar hdl., sem kjörinn hefur verið varaþingmaður Framsfl. í Eyjafjarðarsýslu við síðustu alþingiskosningar. Nefndin er sammála um að leggja til, að kosningin verði tekin gild og kjörbréfið samþykkt.