17.12.1955
Sameinað þing: 26. fundur, 75. löggjafarþing.
Sjá dálk 1415 í B-deild Alþingistíðinda. (2970)

Þingfrestun og setning þings

Einar Olgeirsson:

Ég vil leyfa mér, og ég veit, að ég mæli þar fyrir munn allra hv. þm., að þakka hæstv. forseta fyrir góðar óskir í okkar garð. Ég vil jafnframt þakka honum fyrir ágætt samstarf, það sem af er þessu þingi, óska honum gleðilegra jóla og góðs nýárs, óska honum góðrar heimferðar og heimkomu og vænta þess, að við megum sjá hann aftur heilan á húfi hér, þegar við hittumst aftur eftir áramótin. Ég vil biðja hv. þm. um að taka undir árnaðaróskir mínar til hæstv. forseta með því að rísa úr sætum. - [Þingmenn risu úr sætum.]