28.03.1956
Neðri deild: 100. fundur, 75. löggjafarþing.
Sjá dálk 1418 í B-deild Alþingistíðinda. (2979)

Starfslok deilda

forseti (SB):

Þar sem þetta verður síðasti fundur hv. þingdeildar á þessu þingi og væntanlega einnig á þessu kjörtímabili, leyfi ég mér að þakka hv. þdm. ánægjulega samvinnu við mig sem forseta á því kjörtímabili, sem nú er að líða. Ég óska utanbæjarþingmönnum góðrar heimferðar og heimkomu og öllum hv. þm. allrar farsældar.