20.03.1956
Neðri deild: 90. fundur, 75. löggjafarþing.
Sjá dálk 785 í B-deild Alþingistíðinda. (674)

109. mál, fólksflutningar með bifreiðum

Frsm. (Eiríkur Þorsteinsson):

Herra forseti. Þetta frv. er um skipulag á fólksflutningum með bifreiðum. Samgmn. hefur athugað frv. Það er komið frá Ed., og hafa orðið á því nokkrar breytingar þar. N. leggur til, að það verði samþ. óbreytt.

Ég tel ástæðulaust að fara mörgum orðum um þetta. Það er orðið margathugað, og ég geri ráð fyrir, að ekki verði séð fært að fara út í frekari breytingar á því.