26.03.1957
Neðri deild: 75. fundur, 76. löggjafarþing.
Sjá dálk 984 í B-deild Alþingistíðinda. (1007)

70. mál, kosningar til Alþingis

Frsm. (Gísli Guðmundsson):

Herra forseti. Þetta frv. er borið fram af hæstv. ríkisstj. til staðfestingar á brbl., sem gefin voru út 26. maí 1956 um frestun á atkvgr. utan kjörfundar, vegna þess að landskjörstjórn hafði þá ekki lokið störfum.

Allshn. hefur athugað frv. og leggur til, að það verði samþ. óbreytt.