16.05.1957
Neðri deild: 98. fundur, 76. löggjafarþing.
Sjá dálk 2117 í B-deild Alþingistíðinda. (2231)

83. mál, lax- og silungsveiði

Halldór E. Sigurðsson:

Herra forseti. Með tilvísun til þess, að hér áðan var samþ. brtt. við 35. gr. þessa frv., sem gerir ráð fyrir bótum til þeirra manna, sem í missa við þetta frv., þá lít ég svo á, að það sé búið að rétta hlut þeirra manna, sem hafa þörf fyrir það, og segi því nei.

Brtt. 525,22.b tekin aftur.

108. gr. samþ. með 17:1 atkv.

109. gr. samþ. með 18 shlj. atkv.

110.–116. gr. samþ. með 18 shlj. atkv.

117.–118. gr. samþ. með 18 shlj. atkv.

Fyrirsögn frv. og kaflafyrirsagnir samþ. án atkvgr.

Frv. vísað til 3. umr. með 18 shlj. atkv.