22.05.1957
Sameinað þing: 59. fundur, 76. löggjafarþing.
Sjá dálk 127 í D-deild Alþingistíðinda. (2500)

27. mál, dráttarbraut á Seyðisfirði

Björgvin Jónsson:

Herra forseti. Þáltill. sú, er ég leyfði mér að flytja á þskj. 27, hefur nú verið afgreidd af hv. fjvn.

Í till. minni á þskj. 27 lagði ég til, að rannsókn þessi yrði miðuð við dráttarbraut fyrir allt að 2000 rúmlesta skip. Að athuguðu máli og eftir viðræður við vitamálastjóra telur fjvn. mark þetta sett of hátt og leggur til á þskj. 570, að rannsóknin verði miðuð við dráttarbraut fyrir allt að 1000 rúmlesta skip.

Ég get eftir atvikum fallizt á þessa brtt. fjvn. og vil jafnframt nota tækifærið til að fagna þeim skilningi, sem hv. fjvn. hefur sýnt þessu máli.