31.05.1957
Sameinað þing: 66. fundur, 76. löggjafarþing.
Sjá dálk 2422 í B-deild Alþingistíðinda. (303)

Þinglausnir

Ólafur Thors:

Ég vil leyfa mér, herra forseti, að þakka fyrir hönd þm. góðar óskir forsetans. Einnig þökkum við ánægjulegt samstarf við hann og réttláta fundarstjórn hans. Við óskum honum og ástvinum hans velfarnaðar og vonum, að við megum hitta hann heilan, þegar við komum saman að nýju.

Ég vil leyfa mér að biðja hv. þm. að staðfesta þessi ummæli mín með því að rísa úr sætum. — [Þingmenn risu úr sætum.]