04.03.1958
Neðri deild: 60. fundur, 77. löggjafarþing.
Sjá dálk 1401 í B-deild Alþingistíðinda. (1166)

86. mál, skólakostnaður

Pétur Ottesen:

Herra forseti. Ég hef lagt fram brtt. við þetta frv., sem fór í prentun í dag og óvist er að nái á þennan fund í tæka tíð. Ég vildi þess vegna hreyfa því við hæstv. forseta, hvort hann sæi sér fært að fresta afgreiðslu málsins að þessu sinni. Hins vegar hef ég áhuga á því, að mál þetta geti náð fram að ganga, og óska, að hann taki þá fyrsta tækifæri til þess að koma því áleiðis hér í hv. deild.