11.12.1957
Efri deild: 36. fundur, 77. löggjafarþing.
Sjá dálk 101 í B-deild Alþingistíðinda. (222)

73. mál, kosningar til Alþingis

Frsm. minni hl. (Jón Kjartansson):

Herra forseti. Ég býst við, að hæstv. forseta sé kunnugt um, að það er á leiðinni nál. frá minni hl. allshn. Ég kann ekki við það, að málið sé rætt hér og tekið til fullnaðarmeðferðar hér við þessa umr., án þess að nál. liggi fyrir, og ég óska þess, að hæstv. forseti hinkri nokkrar mínútur eftir nál., svo að hægt sé að halda áfram á þinglegan máta hér.