02.06.1958
Sameinað þing: 49. fundur, 77. löggjafarþing.
Sjá dálk 153 í D-deild Alþingistíðinda. (2518)

190. mál, endurkaup seðlabankans

Forseti (EmJ):

Það hefur ekki komið fram till. um nefnd. Það er till. frá hæstv. menntmrh. um að vísa málinu til allshn. (JJÓs: Er það ekki sama og að svæfa málið?) Ekki þarf það að vera. málið er allstórt, og ég veit ekki, hvort það væri rétt, að n. fengi ekki tækifæri til þess að athuga það.