03.12.1957
Efri deild: 31. fundur, 77. löggjafarþing.
Sjá dálk 1930 í B-deild Alþingistíðinda. (3055)

Afgreiðsla mála úr nefndum o. fl.

forseti (BSt) :

Það hafa ekki ýkja mörg mál að vísu verið lögð fyrir þessa hv. d. eða borin þar fram, en nokkur eru þau þó, mál, sem eru til meðferðar í nefndum deildarinnar, og væri að sjálfsögðu þörf á því, að nefndir færu að afgreiða þau mál, sem til þeirra hefur verið vísað.