18.11.1957
Neðri deild: 23. fundur, 77. löggjafarþing.
Sjá dálk 561 í B-deild Alþingistíðinda. (439)

7. mál, útflutningssjóður o. fl.

Fjmrh. (Eysteinn Jónsson):

Ég hafði nú ekki gert ráð fyrir því að hafa framsögu um þetta mál, en þar sem sá ráðh., sem mundi hafa gert það, er ekki viðstaddur, vil ég leyfa mér að segja aðeins örfá orð.

Málið er um það að breyta nokkuð lögunum um útflutningssjóð, og er hér um bráðabirgðalög að ræða, sem sett voru á þessu ári, en nauðsyn ber nú til þess að staðfesta.

Ég sé ekki ástæðu til þess að rekja hér efni málsins, en leyfi mér að óska eftir því, að málinu verði vísað til hv. fjhn., og má ég fullyrða, að sams konar mál hafi verið í fjhn. frekar en sjútvn. Er það ekki rétt? (Forseti: Já, fjárhagsnefnd.)