05.12.1958
Neðri deild: 33. fundur, 78. löggjafarþing.
Sjá dálk 58 í B-deild Alþingistíðinda. (148)

52. mál, dýrtíðarráðstafanir vegna atvinnuveganna

Fjmrh. (Eysteinn Jónsson):

Herra forseti. Í þessu frv. er að finna ákvæði um framlengingu á söluskatti, þ.e.a.s. því af honum, sem eftir stendur. Er þar um að ræða nákvæmlega shlj. ákvæði og þau, sem gilt hafa þetta ár. Er ráðgert, að þau gildi næsta ár.

Ég sé ekki ástæðu til að hafa um þetta lengri framsögu, en óska eftir, að málinu verði vísað til hv. fjhn.