09.05.1959
Sameinað þing: 46. fundur, 78. löggjafarþing.
Sjá dálk 1922 í B-deild Alþingistíðinda. (2351)

Fyrirspurnir um stjórnarráðstafanir

Forsrh. (Emil Jónsson):

Herra forseti. Mér er alls ókunnugt um þetta mál og alveg sérstaklega um þau tvö sérstöku atriði, sem hv. 7. þm. Reykv. ræddi hér sérstaklega. Hins vegar mun ég að sjálfsögðu flytja utanrrh. þessi ummæli hans og það, sem þeim fylgdi, þannig að hann geti fengið tækifæri til að svara þeim, þegar hann kemur hingað aftur. En ég get ekki látið hjá líða að vekja athygli á því, að annað þessara atriða, sem hv. þm. nefndi, gerðist 29. júlí 1958 og hið síðara gerðist 21. okt. 1958, hvort tveggja í tíð hæstv. fyrrv. ríkisstj., og hefði e.t.v. verið ástæða til fyrir hana að athuga um málið þá þegar.