22.12.1958
Efri deild: 42. fundur, 78. löggjafarþing.
Sjá dálk 1010 í B-deild Alþingistíðinda. (726)

73. mál, bráðabirgðafjárgreiðslur úr ríkissjóði

Björn Jónsson:

Herra forseti. Mér skilst, að hæstv. forseti hafi ekki heyrt þá ósk, sem ég bar hér fram um það, að fjhn. yrði gefið tækifæri til þess að fjalla um málið. Ég endurtek þá ósk að, að lokinni þessari umr. taki fjhn. málið til meðferðar og að nægilegt hlé verði gert á fundum til þess, að þingflokkarnir gætu tekið afstöðu til þess.